Minnka saltneyslu
Friday 12. March 2010 kl: 17:35
Svefn: 8,5 klt
Hreyfing gærdagsins: Engin
Hvað er ég ánægð með í dag: Stóð mig vel í matarmálum í vinnunni í dag, en Föstudagar eru oft erfiðir.
Vigt: +700 g


Hér eru nokkur saltminnkandi ráð.

1. Kryddaðu matinn þinn með hvítlauk, oregano, basiliku, pipar, timjan eða sesam. Þessi krydd innihalda ekki extra salt.

2. Ef það er salt í uppskriftinni sem þú ert að elda upp úr, minnkaðu það um helming.

3. Keyptu sjaldnar unnar kjötvörur, eða unninn mat.

4. Lestu á innihaldslýsingarnar í matvælum og skoðaðu salt magnið

5. Megrunarmatur (low-fat, low-calories) er ekki endilega hollur og oft er búið að bæta of miklu salti í matinn og á þetta sérstaklega við frosinn mat.

6. Þegar þú kaupir súpur, frosinn mat, dósamat, snakk og smjör veldu ósaltaða vöru.

7. Keyptu frekar frosið grænmeti og frosna ávexti í stað niðursoðna ávexti (segir sig kannski svolítið sjálft heheh)

8. Skyndibitamatur er MJÖG saltaður, forðumst hann!

9. Veldu ferskar kjötvörur, grænmeti og ávexti

10. Forðastu mat með MSG


Bookmark and Share
Friday 12 March 2010 kl: 19:41
Nafn:   
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Heimasíða:   http://www.gamlisveppur.bloggar.is
Tjáningin:  Af salti þá er íslenska sjávarsaltið sem Pottagaldrar selja súper flott. Eðalsalt er það kallað og með hlutfallslega litlu Na+
Og fyrir miðaldra kvenfólk eins og mig þá finnst mér kostur að fá salt úr sojasósu, Kikkoman þessari með 300 ára framleiðsluhefð, og ná sér í hormónalíki í leiðinni.
Er ég eitthvað óvenjuleg með að nota krydd sem ekki eru með salti forblönduðu í?
Svo finnst mér orðið mjög vont að borða saltar súpur sem framleiddar eru á veitingastöðum.
Njóttu lífsins, Gyða.


Bæta við athugasemdum   
Nafn: - Verður að vera útfyllt

Email: - Ekki sýnilegt á vefnum

Heimasíða: - Verður að byrja á http://www.

Texti: - Verður að vera útfylltur

Filter - Verður að vera útfylltur - hint upphafsstafirnir mínir, (ess þonn þonn)

Fylgjast með Minnka saltneyslu
 
Ip adressan þín er 38.107.191.106 og verður hún skráð með færslunni.   Ef IP talan þín finnst ekki, skráist færslan ekki