Sprunkt
Friday 05. February 2010 kl: 21:14
Svefn: 8,5 klt
Hreyfing gærdagsins: Engin
Afsökun dagsins: Var upp í Skýrr, kunni ekki á mötuneytið


Eins og svo oft áður, þá er ég dugleg mán, þriðj, mið og fimmt, svo bara gerist eitthvað á föstudögum....

Ég gerði mistök í morgun, fékk mér hrikalega gott rúnstykki á starfsmannafundi og í leiðinni leyfði ér mér að fá mér smá kökubita. Þegar kom svo að hádegismatnum, þá var lasagne (kolvetni dauðans) sem ég fékk mér og 2 tímum seinna var mér boðið upp á Herbalife "súkkulaði" stykki sem kveikti svona svakalega í mér...

Ég óð út í búð, keypti mér súkkulaði, ís, meira súkkulaði og pizza öskraði á mig..

Búin að háma þetta allt í mig og einn bjór í kaupæti..

3303 hitaeiningar étnar og geri aðrir betur!

Ég verð að fara draga lærdóm af þessu, vera ekstra varkár á föstudögum...

Eitt uppgötvaði ég samt áðan... Margir nota svona sem afsökun næstu mánaða að halda áfram í baráttunni við aukakílóin. Sumir þurfa ekki nema einn svona dag og í kjölfarið gefast upp og fara aftur í fyrra horf.

Ég veit alveg að ég mun ekki gera það, mun eiga svolítið "erfitt" um helgina.. en þegar kemur mánudagur veit ég að ég verð hræðilega dugleg.

Leiðinlegt samt að eyðileggja heila viku með þessari vitleysu... bæti mér þetta upp á morgun með hlaupi á brettinu og á sunndaginn fer ég að hlaupa með vetrargosunum....

HALDA ÁFRAM, HALDA ÁFRAM, HORFA FRAM Á VIÐ, HORFA FRAM Á VIÐ, EKKI GEFAST UPP, EKKI GEFAST UPP.

Bookmark and Share
Saturday 06 February 2010 kl: 09:06
Nafn:   
Lena
Tjáningin:  Mér finnst thú ekki búin ad eydileggja heila viku. Thú ert ad gera góda hluti. Hver dagur getur ekki verid jafn gódur. En gódu dagarnir skemmast ekkert útaf einum slæmum! ;-))

En annad, thad gefur augaleid ad rúmstykki og kaka um morguninn hafi kveikt í thér. Thví thá stígur blódsykurinn svooooo hratt!! Thess vegna er svo mikilvægt ad fá alltaf prótein og góda fitu med hverri máltíd, til ad halda meira jøfnum blódsykri. Og thar med fær madur ekki thessi blódykurs føll og thar med ekki thessar hrikalegu sykurlanganir!!

Thessi dagur sem thú lýsir, thekki ég sjálf ólýsanlega vel!! Hef barist vid offát frá barnsaldri. Var ekki fyrr en ég køttadi út hveiti, sykur, og for ad borda fullkorna vorur, og passa ad halda stabílum blódsykri ad ég gat farid ad vinna í mínum málum! :-)

Gangi thér afram vel. Mér finnst thú rosalega dugleg!


Saturday 06 February 2010 kl: 09:47
Nafn:   
barbietec
Heimasíða:   http://www.barbietec.com
Tjáningin:  já.. blóðsykurinn skiptir ótrúlega miklu máli fyrir mig. Að halda honum jöfnum er krúsjal atriði til að ná að þola daga sem eru erfiðari en aðrir.

Ætli ég verði ekki bara að setja mér skýrt markmið fyrir næsta föstudag (sem endar með fyrirtækjaheimsókn með veitingum *andvap*) og markmiðið verður 2000 hitaeiningar Broskall


Saturday 06 February 2010 kl: 10:30
Nafn:   
Margrét
Tjáningin:  Hæ hæ, mér finnst stærsta afrekið þitt vera að segja hér á síðunni í smáatriðum hvernig þér mistókst að halda þig frá óhollustunni og bara telja upp allt sem þú borðaðir...snilld....ég færi alveg í mínus við að opna mig svona en það kannski bara sparkar dáltið í rassinn á manni líka. Gangi þér vel áfram.
Kv. Margrét.


Saturday 06 February 2010 kl: 16:52
Nafn:   
Lena
Tjáningin:  allveg sammála Margrét!! Thad er stort afrek ad thora ad segja frá thví hér!!


Saturday 06 February 2010 kl: 21:30
Nafn:   
barbietec
Heimasíða:   http://www.barbietec.com
Tjáningin:  Ég lofaði sjálfri mér að blogga heiðarlega um léttinginn minn á árinu og bæði segja frá sorgum og sigrum.

Einhvernvegin get ég ekki trúað því að manneskja sem hefur verið að berjast við ofát í mörg ár geti bara með einni ákvörðun hætt allri vitleysunni og aldrei tekið hliðarspor....

Stundum upplifi ég mig sem fyrirmynd hérna á blogginu og mér þykir það ekki vera rétt að þykjast aldrei taka hliðarspor.

Ég ber mig oft saman við aðra mér til hvatningar og að vita að þeir eru ekki að segja satt veldur mér ótrúlegum vondbrigðum. Einnig brýt ég mig oft niður að geta ekki gert eins og aðrir og mér þykir það leiðinlegt ef það sem ég er að bera mig saman við er bara plat ...

humm.. skiljú mig ? heheh Broskall

Bæta við athugasemdum   
Nafn: - Verður að vera útfyllt

Email: - Ekki sýnilegt á vefnum

Heimasíða: - Verður að byrja á http://www.

Texti: - Verður að vera útfylltur

Filter - Verður að vera útfylltur - hint upphafsstafirnir mínir, (ess þonn þonn)

Fylgjast með Sprunkt
 
Ip adressan þín er 38.107.191.107 og verður hún skráð með færslunni.   Ef IP talan þín finnst ekki, skráist færslan ekki