Hreyfing
Wednesday 03. February 2010 kl: 11:10
Svefn: 8 klt
Hreyfing gærdagsins: 75 mín danstími
Afsökun dagsins: Drengurinn veikur
Hreyfing er athöfn sem ég hef átt erfitt með að tileinka mér. Það má frekar fullyrða að ég hafi prófað allar hreyfingar í heimi, frekar en að ég hafi prófað alla megrunarkúra í heimi þar sem ég get í raun bara tekið þátt í tveimur og hálfum (er ekki viss um að mér þykir DDV kúr þar sem hann kom mér á rétta sporið... )
En já... hreyfing hefur reynst mér einkar erfið.
Ég er(var) þessi týpa sem lagði sem næst búðarinnganginum til að þurfa labba sem minnst, en í dag skiptir það ekki eins miklu máli.
Mér tókst aldrei að klára námskeiðin sem ég fór á í ræktinni (Í kjólinn fyrir jólinn námskeið) en í dag hef ég stundað reglulega hreyfingu (hlaup) í 36 vikur eða tæpa 9 mánuði sem er algjört met.
Ég nennti ómögulega að fara í göngutúra, hvorki göguferðir í hverfinu, né upp á fjöll eða á annað hallandi landslag, en núna er ég að fara ganga Laugarveginn í sumar (ekki niðr:í bæ) og get ekki beðið eftir að það hlýni í veðri og ég get arkað upp Esjuna.
Einnig leiðist mér ekki að bæta við hreyfingu í dag og fagna óvæntum hreyfistundum sem sigrum og er nýjasta æðið dans sem er ótrúlega mikil hreyfing.
Já.. þannig að það má kannski fullyrða að ég hafi einhvernvegin náð að tileinka mér að stunda reglulega hreyfingu.
Ég veit ekki hvað gerðist, afhverju ég allt í einu náði að tileinka mér hreyfingu og fá þessa tifinningu í mig að ég væri ekki að hreyfa mig til að mjókka, heldur hreyfa mig til að líða betur. Kannski var það af því að ég fór að hlaupa með þeim tilgangi að ná að hlaupa í ákv. tíma. Ég var ekki að hlaupa til að mjókka heldur ná hreysti... kannski er það það... ég veit ekki.. En eitt veit ég!
ÞAÐ ER ALDREI OF SEINT AÐ BYRJA AÐ HREYFA SIG OG ÞAÐ Á ALDREI AÐ GEFAST UPP AÐ LEITA AÐ HREYFINGU SEM HENTAR ÞÉR!
oft þarf ekki nema að finna þessa einu sönnu hreyfingu (hlaup í mínu tilfelli) og þá hrynja inn allskonar auka hreyfingar með og hugafarsbreyting verður á tilganginum

Bloggarinn
Nýjustu kommentin
20 Nýlegar færslur
Á Dagskrá
25 dagar í litla frænda - 01.10.
109 dagar í Jólin.
RSS Vinir
Ég er að lesa
Flickr myndir
Blogg um...
Heilsa og ýmislegt
Smáa letrið