Hreyfing dagsins
Tuesday 29. December 2009 kl: 15:57
Í morgun löbbuðum við KK með Litla Kútinn á leikskólann, tókum svo rúnt í bakaríið og keyptum okkur kaffisopa og rúnstykki til að narta á í leiðinni, en förinni var heitið niður í Laugar í Baðstofuna.
Okkur áskotnaðist gjafabréf fyrir tvo og var klárlega planið að nota kortið milli jóla og nýárs.
Við eyddum heilum þremur tímum í Baðstofunni og tókst okkur að sofna í heilan klukkutíma í slökunarstól fyrir framan arineld *ahhh*, fórum í heita pottinn, gufu og aftur í heita pottinn
Svo var arkað heim aftur, en við fórum rúmlega þrjá kílómetra með þessu farti okkar.
Svo var ég búin að lofa Skottinu að fara með henni aftur í Heilsuborg að hlaupa og taka einn hring í tækjunum (svona flýtileiðartæki eitthvað bleh) og auðvitað fór ég þangað líka.
Svakalegur munur á þessum tveimur stöðum, þ.e.a.s World Class og svo Heilsuborg. Við vorum 3 - 4 á svæðinu að æfa í Heilsuborg meðan WC var stappað... Mjöt notalegt í Heilsuborg og rólegt
Þannig að ég get með sanni sagt að hreyfingin í dag hafi verið nokkuð góð hjá minni

Bloggarinn
Nýjustu kommentin
20 Nýlegar færslur
Á Dagskrá
29 dagar í litla frænda - 01.10.
113 dagar í Jólin.
RSS Vinir
Ég er að lesa
Flickr myndir
Blogg um...
Heilsa og ýmislegt
Smáa letrið