Heilsuborg
Monday 28. December 2009 kl: 13:08
Skellti mér í Heilsuborg með Skottinu áðan, en ég fekk tvo boðsmiða þangað sem duga til 1. jan.

Hóstinn minn er enþá að drepa mig þannig að ég var eins og versti astmasjúklingur á brettinu, en náði 15 mín skokki. Ég hef ekki skokkað á bretti áður svona meðvitað, og ég var mikið að bera þetta saman við útiskokkið.

Svolítið fyrirsjáanlegt að skokka á bretti, en aftur á móti saknaði ég svakalega fríska loftsins og kuldans. Einnig pirraði það mig að geta ekki stjórnað hraðanum með fótunum, heldur þurfti að ýta á einhverja takka (ég sem er takkaóð) en þetta var skemmtileg tilbreyting.

Svo fórum við Skottið í einhvern svona æfingahring í tækjum, tókum reyndar tvo hringi og þurfti ekki að stilla tækin þar sem við stjórnuðum þyngdinni með hraðanum á æfingunum.

Þetta er fínn staður, ég var ánægð með að konan sem tók á móti okkur kom til okkar og spurði hvernig væri, hún brosti til okkar þegar hún var að labba um og svo var einstaklega rólegt þarna.

Að nýta sér svona ókeypis kort er nótla bara snilld!

Bookmark and Share
Monday 28 December 2009 kl: 16:01
Nafn:   
Linda Rós
Tjáningin:  Þegar ég heyrði orðið Heilsuborg fyrst þá datt mér í hug leikskóli ;-)

Bæta við athugasemdum   
Nafn: - Verður að vera útfyllt

Email: - Ekki sýnilegt á vefnum

Heimasíða: - Verður að byrja á http://www.

Texti: - Verður að vera útfylltur

Filter - Verður að vera útfylltur - hint upphafsstafirnir mínir, (ess þonn þonn)

Fylgjast með Heilsuborg
 
Ip adressan þín er 38.107.191.109 og verður hún skráð með færslunni.   Ef IP talan þín finnst ekki, skráist færslan ekki