Hlaupafærslur
Hér er hægt að lesa allar hlaupafærslurnar mínar
Hér er hægt að sjá æfingarnar mínar með skráðum tíma og hraða
Hlaupatal
Ég ákvað að taka saman nokkur hlauparáð sem ég hef sankað að mér á Internetinu. Einnig eru hlekkir á áhugaverðar síður sem ég hef nýtt mér í hlaupaæðinu mínu.
Það kom mér á óvart hvað hlaup geta verið ótrúlega skemmtileg. Reyndar eins og við svo margt annað er alveg hægt að finna hluti við hlaup sem eru ekki eins skemmtilegir en þegar upp er staðið þá eru svo margfalt fleiri jákvæðir hlutir við hlaup en neikvæðir að maður getur ekki annað en sagt ÞAÐ ER ALVEG HRIKALEGA GAMAN AÐ STUNDA hlaup en ég er búin að hlaupa í 141 vikur, eða síðan 24. Maí 2009 . Ég verð einnig að nefna að hlaup er góð leið til að stjórna þyngdinni sinni þar sem maður brenni ca. 100 hitaeiningum fyrir hverni km.
Áhuginn á hlaupum hófst þegar ég kynntist hlaupaprógramminu C25K en þetta er hlaupaprógram fyrir sófadýrið en á 9 vikum er maður farinn að skokka 5 km eða í 30 mín. Hægt er að sækja PodCast fyrir iPoddinn eða mp3 spilarann þinn, þar sem maður er leiddur í gegnum programmið með tónlist og munnlegum fyrirmælum. Það eina sem maður þarf sem sagt er mp3 spilara og skó... svo segir rödd manni að labba og hlaupa til skiptis eftir því hvar maður er í prógramminu og þess á milli er hressandi tónlist með. Hér er prógramið útlistað --> C25K Icelandic
Ég er oft spurð á hvaða skóm ég hleyp og hvaða hlaupaúr ég nota, en ég hleyp með Forerunner 305 úr frá Garmin og í Saucony skóm. Fyrstu hlaupaskórnir mínir voru Asics Kayano og líkaði mér vel að hlaupa í þeim. En svo kom ný útgáfa af þeim skóm sem mér líkaði ekki þannig að ég prófaði Saucony skóna. Ég verð nú að segja að mér líkar betur að hlaupa í þeimm. Þeir veita mér betri stuðning þar sem ég þarf innanfótarstyrkingu og mér finnst ég hitna ekki eins mikið á fótunum í þeim.
En hvað er svo gaman við að hlaupa ?
Margir heyra orðið "hlaup" og verða bara móðir við tilhugsunina, jafnvel bara móðir við að heyra orðið "hlaup" og þá tilfinningu skil ég vel þar sem ég hef aldrei og þá meina ég aldrei getað hlaupið! Ekki einu sinni þegar ég var í grunnskóla og þurfti að hlaupa 2.5 km í leikfimistíma svokallaðan "Stífluhring", þá gekk ég. Var reyndar ekki svo kræf að fela mig bak við kirkjuna eins og svo margir, en ég hljóp ekki, ekki einu sinni til að þykjast!.Svo ég svari nú spurningunni þá er gaman að hlaupa af því að:
- hlaup er ókeypis sport og þarf í raun bara góða hlaupaskó og þá ertu tilbúin/n í tuskið.
- Það er spennandi að setja sér hlaupamarkmið í lengd og tíma.
- Að hlaupa úti er fjölbreytilegt, þar sem maður getur valið sér óendanlega margar hlaupaleiðir.
- Að taka þátt í götuhlaupum er gaman, þar sem hópur af jákvæðu, hressu og ánægðu fólki hittist og tekur á því saman.
- Það er gaman að halda utan um hversu langt maður hefur hlaupið og sjá km töluna hækka og hækka og hækka :)
- hlaup eykur þol, þjálfar lungun og hjartað, styrkir bein og vöðva og kemur blóðrásinni af stað.
- Í hlaupum er maður fljótur að ná persónulegum árangri og árangurinn er mjög mælanlegur.
- Þegar maður er á hlaupum, þá finnur maður fyrir því að maður er lifandi!
- Að standa í miðju endorfínskýi eftir hlaup er ein sú besta tilfinning sem er hægt að finna.
- Með því að hlaupa getur maður haft áhrif á þyngdina og látið hana fara niður á við.
- hlaup geta bæði verið einstaklingssport og hópsport
- Allir geta hlaupið óháð aldri og er hægt að fara með fjölskyldunni út að hlaupa sér til skemmtunar.
Hlauparáð
Hér koma nokkur ráð sem ég hef fundið á Netinu og að tala við aðra hlaupara.- Hlauptu með bringuna upp, bakið beint (en smá hallandi fram) og hökuna beint fram.
- Olnbogarnir eiga að sveiflast beint aftur en aðeins að mitti þegar þeir fara fram.
- Það á alls ekki að lenda á hælnum, heldur seinka niðurstiginu með því að lifta upp hnénu og lenda á táberginu.
- Vera með lófana krepta laust saman og ímynda sér að þú haldir á saltstöng milli þumalfingurs og löngutöng.
- Hugsa sér að þú sért með blýanta sem standa út úr mittinu á þér og þú eigir að skrifa beina línu með þeim.
- Hugsa sér að einhver sé að draga þig áfram
- Í hvert skipti sem þú ferð að verða bogin í baki og "hanga", ímyndaðu þér að þú fáir ískalt vatn niður eftir bakinu
- Halda sama takti á jafnsléttu, upp brekkur og niður brekkur með því að minnka skreflengd upp og niður brekkur (Lengri skreflengd, reynir meira á mann).
- Spenna örlítið magann
Reyjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010
Það vildi svo skemmtilega til að ég var beðin um að taka þátt í Herferðinni fyrir Reykjavíkurmaraþonið og komu auglýsingar um allan bæ :)Hér má sjá dæmi um auglýsingar :)
Svo bara endaði þetta allt saman að það var maður sem keyrði á eina auglýsinguna OMG!
Hlaupasíður
hlaup.comhlaup.is
MapMyRun.com
hlaup 2009
Jogging Turtles
Jogging Turtles á Fésinu
Runners world
Hlaupaprógröm
C25K.com - 5 kmCoolrunning - 10 km
Coolrunning - 1/2 Maraþon km
Coolrunning - Heilt Maraþon km
PodCasts
Ullreys podCast - 5 kmPodrunner Intervals - 8 km
Podrunner Intervals - 10 km
Hlaupagreinar
Training Through The Cycles of LifeStart right here
Shedding the past
Why does people drop out
Secret of speed
Newbie Chronicles
Hlaupaforrit fyrir hlaupaúr
zonefivesoftware.comHlaupatónlist
Hlaupalög flokkuð eftir takti (pace)Hlauparar
Eva MargrétBibba Svala
Reiknivélar
Kg to PoundKaloríu reiknivél
Hraðareiknir
Hraðareiknir 2
Að léttast á hlaupum
BMI reiknir






Bloggarinn
Krabbameinssagan mín
Nýjustu kommentin
20 Nýlegar færslur
Á Dagskrá
44 vikur í Brúðkaup. 12.12.12
RSS Vinir


Blogg um...
Heilsa og ýmislegt
Smáa letrið