Sigrún Þöll

Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir

barbietec[hja]gmail.com

BASIC::..:.

name::..::Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir::
gender::..::female::
country::..::Iceland::
born::..::1975::
hobbies::..::Computers..::Drawing::..Photographing::
occupation::..::Software tester at Arionbanki (www.arion.is)::

FORSAGAN::..:.

Fyrir 370 vikum fór ég á fund hjá Íslensku Vigtarráðgjöfunum og ákvað ég í kjölfarið að breyta um lífstíl og borða eftir svo kallaða danska kúr eða DDV.

Á einu ári missti ég 46 kg sem gjörbreytti hugafari mínu til offitu og matar og get ég með sanni sagt að þetta hafi verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt ár. Einnig opnuðust margar dyr í kjölfar þess að ég tók algjöra U-beygju í matarmálunum mínum og nýt ég þess en í dag.

Þekkingin sem ég hef fengið á mat og hitaeiningum í mat frá því að DDV skeiðið hófst, er gífurleg og hef ég síðan þá haft fræðin bak við eyrað þegar ég borða eða skipulegg máltíðir.

En afhverju þyngdist ég þá aftur og afhverju er ég enþá að berjast við fitubollupúkann ?

Jú... árið 2007 varð ég ólétt af drengnum mínum og í kjölfarið tók ég þá ákvörðun að taka mér pásu í að vera holl og leyfði ég mér aftur gamla mynstrið mitt. Ég ákvað líka að njóta þessa bara og pæla ekkert í aukakílóunum sem myndu hlaðasta á mig fyrr en ég væri búin að eiga og ég naut þess bara á meðan... En ég var hörð á því að ég ætlaði að byrja aftur þremur mánuðum eftir "burð" á DDV og taka léttinginn með stæl.

Hmm... Stællinn tafðist eitthvað og ég reyndi oft að byrja á DDV, en ég datt alltaf út af sporinu og það var ekki fyrr en ég fór að vinna sem ég gat hafið léttinginn minn aftur. Með því að byrja að vinna var reglan komin aftur, drengurinn var orðinn eldri og ég fékk hvatninguna mína aftur (umgangast fólk!!! ekki bara tala barnamál allan daginn heheheh)

Þannig að 28 janúar 2009 hóf ég aftur léttings ferilinn minn!. En þar sem ég var ekki tilbúin í DDV aftur og ég þurfti stuðning, ákvað ég að prófa eitthvað nýtt og fór ég á fund hjá GSA, Ég hafði heyrt góðar sögur af því, ótrúlegar reynslusögur og ég sló bara til.

Eftir 2 1/2 mánuð áttaði ég mig á því að þetta prógram hentar mér enganvegin og lauk þar með GSA ævintýrinu en ég var staðráðin í því að stoppa ekki þarna, heldur finna mér annað "prógram". (léttist nú samt um 10,6 kg á fyrstu 2 mánuðunum í GSA!!)

Og hvað geri ég núna til að léttast ? Í stað þess að láta aðra bera ábyrgð á því sem ég borða, ákvað ég að taka málin í mínar hendur og bera ábyrgðina sjálf! Það er það sem ég þarf að gera þegar upp er staðið, þ.e.a.s að standa með sjálfri mér og bera ábyrgð á mér sjálfri.

Þannig að ég tók saman alla þá þekkingu sem ég hef verið að sanka að mér síðan 2005 og settist niður fyrir framan forrit sem telur hitaeiningar og setti saman allskonar matseðla sem ég vissi að ég myndi vilja borða yfir daginn og fann út hversu langt ég gat farið með allskonar hluti til að vera undir 1500 hitaeiningum. Þegar ég var sátt, setti ég upp heildarskipulag og hef farið eftir því síðan.

En þá fór ég að pæla í viktunarmálum hmmm... Ég ákvað að setja upp vörður á léttingsleiðinni til að halda mér gangandi ásamt því að ég þarf eitthvað til að "standa mína plikt" við. Ég ákvað að hafa einn blogg viktunardag, sem yrði 28 hvers mánaðar og ég myndi fara til heimilislæknisins míns einu sinni í mánuði og hann myndi vikta mig.

Þá var ég komi með tvær vörður á tímabilinu og skipulag á bak við það!. Á blogg deginum má ég "sletta" út klaufunum og þegar ég fer til the doctor. Markmiðið er svo að léttast um 2kg mánuði, eða 500 g á viku. OK!

En hvað gerðist svo ?
Ég kynntist c25k hlaupaprógramminu og í kjölfarið kom en eitt markmiðið! :) Ég ætla að ná sama árangri í hlaupum og ég hef náð í matarmálum. Ég geri ráð fyrir að það muni ganga upp og niður, bara svona eins og lífið er, en meðan ég held áfram og læt ekki deigan síga þá munu hlaupin á endanum verða partur af mínu lífi eins og breyttur lífstíll í matarmálum er núna. Ég er meira segja búin að hlaupa í 141 vikur!!! HÚRRA!

En hvað svo ?
Jú í endan nóvember 2010 greindist ég með brjóstakrabbamein og í kjölfarið tók heljarinnar ferli við sem vægast sagt lét bæði létting og hreyfing fjúka út um verður og vind. Fór í tvær aðgerðir í desember, byrjaði í lyfjameðferð í febrúar 2011 og fór alls 16 sinnum, ég fór einnig í lyfjabrunnsaðgerð í miðjum febrúar og fjórum vikum eftir síðustu lyfjameðferð 25 sinnum í geislameðferð.
Þeir sem hafa áhuga geta lesið um krabbameinsferlið hér en þegar þessi orð eru skrifuð þá er ég að reyna að ná fótfestu aftur hvað varðar að koma mér á réttan kjöl, matarlega, léttings og hreyfingalega séð.

Þannig að markmiðin mín núna eru:
1. Ná fyrri þyngd (er með nokkrar vörður á leiðinni sem stækka mishratt og sumar hrynja, en ég held áfram og það skiptir máli).
2. 5k á 30 mín í Miðnæturhlaupinu 2012
3. 10k á 60 mín í Reykjavíkurmaraþoninu 2012

og þar sem það er skráð hér, þá verð ég að standa við það :)

Hér er hægt að finna færslur sem er um léttinginn síðan í Janúar 2008 og Hér eru DDV ferðalagið mitt :) Ef þið hafið svo áhuga á að skoða hlaupabloggin, þá eru þau Hér

Sigrún Þöll fyrir og eftir myndir

SPURT OG SVARAÐ::..:.

Hér að neðan eru mínar skoðanir á spurningum sem ég hef fengið í gegnum tölvupóst þegar ég var á DDV. Margt hefur breyst síðan þá, en á þeim tíma sem ég ritaði þetta þá var þetta leiðin sem ég var á og virkaði fyrir mig. Ég hef nú tekið nýja nálgun á offituvandamálinu mínu en þrátt fyrir það vil ég engan vegin gera lítið úr DDV á neinn hátt þar sem sú fræði á mikinn heiður á því hvar ég er stödd í dag.
Ég vil taka það fram að ég hef enga sálfræðimenntun né næringafræðimenntun. Það sem stendur hér að neðan eru í flest öllum tilfellum aðferðir sem ég hef notað á mig til að ná tökum á offituvandamálum mínu. Þar af leiðandi verður hver og einn að meta út frá sínum eigin forsendum og persónulegum skoðunum hvort sá/sú vill fylgja þessu ráðleggingum og/eða taka mark á þeim.

Hvað tók það mig langan tíma að læra á DDV mataræðið.

Það tók mig ekki svo langan tíma að læra á matarræðið sjálft, en að reikna rétt út máltíðar, læra á að merkja við dagbókina og þess hátta hluti tók tvær til þrjár vikur.

Borðar þú hveiti og ger, og hvernig brauð borðar þú ?

Ég borða allt brauð, sama hvort það er hvítt, gróft, spelt, með hnetum, rúsínum, kúmen eða hvað sem er, þá borða ég það brauð. Eina sem ég sit fyrir mér, er að brauðsneiðin fari ekki yfir 30 g.

Ég hef tekið eftir því að leiðin sem þú valdir að létta þig virkar ekkert svo flókin. Er ekki flókið að borða eftir íslensku vigtarráðgjöfunum ?

Varðandi það að þetta virki ekki flókið á síðunni minni hefur mikið að gera að ég ákvað að þetta væri ekki flókið, ég hugsaði með mér að ef ég myndi skipuleggja átið mitt eins og það var eins og ég geri núna þá er það miklu flóknara. Þannig að hugafarið er númer 1,2 og 3 sama hvaða leið þú velur til þess að takast á við ofeldis vandmálum þínum... tja eða bara hvaða vandamálum sem er.

Ef maður er svakalega þungur getur þetta matarræði hjálpað manni?

Ég held ég geti svarað með fullri samvisku Já! Ekki spurning. Mataræðið hefur þann kost að vera fjölbreytt og maður er ekki félagslega einangraður á þessu fæði. Allir í fjölskyldunni geta borðað matinn sem maður borðar og "sætabrauðið" og "nammið" sem maður býr til sjálfur er frábært, ásamt því að vera södd!!

Mér finnst fiskur ekkert sérstaklega góður og borða hann alltaf soðinn. Get ég eldað hann einhvernvegin öðruvísi ?

Varðandi fiskinn þá er nú hægt að elda hann öðruvísi en að sjóða greyið :) Þú mátt til dæmis borða graflax, rækjur, humar, túnfisk, lúðu og lax (og fleiri tegundir) þannig að rækjusamloka með majonesi, eggi og eplum er ljúffengt, hvað þá túnfiskssalat. Það er hægt að kaupa marga góða fiskrétti í til dæmis Hafrúnu þar sem fiskurinn er mareneraður upp úr kryddi og olíu ekki e-h sósu dæmi þannig að það á að vera hægt að hafa mikla fjölbreytni í fisk áti :)

En hvað um nammi ? Eru aldrei nammidagar hjá þér ?

Nei það eru ekki nammidagar hjá mér. Ég hef svo oft reynt að hætta borða nammi, eða minnka nammið hjá mér og með því leyft mér að borða nammi á laugardögum og það hefur alltaf leitt af sér að ég hef byrjað aftur. Þar af leiðandi ákvað ég að sleppa öllu nammi en ég geri mér til mitt eigið nammi,heita eplaköku, súkkulaði mola, hlaup og hafrakúlur, “bingó kúlur”, ís og fl. Það tók mig tvær vikur að losna við sætuþörfina og á meðan var ég dugleg að búa mér til mitt sælgæti, sykurlaust og gott.

En ef ég get ekki létt mig, hvað geri ég þá ?

Ef þig virkilega langar mjög mikið að léttast, þá muntu gera allt í þínu valdi til að ná því markmiði. Það er ekki nóg að vilja það og það er ekki nóg að setja sér það markmið að léttast, það þarf að vinna að því. Það væri nú ekki sniðugt að stofna fyrirtæki og segja "Þetta árið á hagnaðurinn að verða 10 milljónir" sitja svo bara í forstjórastólnum og bíða eftir að milljónirnar rúlli inn. Lífið er vinna og að ná markmiðum sínum er líka vinna.
Það þarft að setjast niður og ákveða hvað þú ætlar að gera til að létta þig, hvað þarf að breytast í kringum þig til þess að þú léttir þig og svo taka á málunum.

Hvað var það sem lét þig geta tekist á við það verkefni að grenna þig núna ? Afhverju ekki fyrr ?

Í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér, er ég að grennast fyrir MIG og engann annan. Þetta var mín ákvörðun á mínum forsendum. Ég fékk allann þann stuðning sem ég óskaði eftir hverju sinni og hafði stóran stuðningshóp í kringum mig (DDV-fundirnir og fjölskyldan mín ef dæmi má nefna). Ég ákvað að taka fimm kíló í einu og setti mér raunhæft markmið. Ákvað að ég gæti grennt mig og gerði það að hálfgerðu áhugamáli.

Fannst þér þetta einhverntíman erfitt og hvenær byrjaðir þú að hreyfa þig ?

Það fer nú bara eftir því við maður er að miða við :) Þegar ég las spurninguna þá hugsaði ég strax NEI, en svo þegar ég fór að hugsa þetta aðeins nánar þá finnst mér frekar ósanngjarnt að svara þeirri spurningu á svona auðveldan hátt. Auðvitað er ekkert auðvelt að sneiða fram hjá kökum, skyndi bitamat, sælgæti og þessa háttar dóti, sérstaklega til að byrja með þegar blóðsykurinn er enþá í ójafnvægi. En samt sem áður var sá erfiðleikastuðull var frekar lár miðað við margt sem ég hef gengi í gegnum. það hjálpaði líka að ég varð með svo margt annað nýtt í staðinn sem styrkti mig á þannig mómentum. Það að sjá vigtina sýna lægri og lægri tölur í hverri viku gerði þetta líka mjög auðvelt og eins og ég hef svo oft áður sagt, þá varð þetta að áhugamáli hjá mér. Þegar árangurinn varð svo sýnilegri og sýnilegri þá varð þetta bara auðveldara og auðveldara, einnig skemmtilegra og skemmtilegra :) Til að byrja með hreyfði ég mig ekki neitt. það var ekki fyrr en ég hafði losnað við yfir 40 kg þegar ég fékk hvatninguna að hreyfa mig. Tók ákvörðun að taka eitt í einu og það er meira en að segja það að hreyfa sig með öll þessi aukakíló.

Hvað hjálpaði þér mest við að missa kílóin þín?

Það sem hjálpaði mér í að missa kílóin mín var að ég mætti einu sinni í viku í vigtun. Ég var ekki ein heima hjá mér að vigta ofan í mig mat, fór ekki ein á vig tina og var ekki ein og óstudd að taka mig á. Ég hafði mágkonu mína með mér, mætti einu sinni í viku í vigtun og hjálpaði það mér að standa mig, sótti fundi hjá DDV og talaði stanslaust við mágkonu mína um mat, eldaði mat og fékk uppskrfitir og hugmyndir frá henni (og hún frá mér). Ég gerði þetta að áhugamáli :) Einnig tók ég ákvörðun að bera ábyrgð á ákvörðuninni sem ég tók (að létta mig) og ég breytti lífstílnum mínum þannig að ég gæti létt mig (í mínu tilviki DDV). Einnig hugsaði ég til dæmis eins og með bolludaginn og páskaeggin. "Á næsta ári fæ ég mér bollu, á næsta ári fæ ég mér páskaegg" það hjálpaði svakalega! Reyndu að finna þér leið sem veitir þér aðahald. Ef það er að tala við vinkonu þina einu sinni í viku, tala við móður þína eða einhverjum sem þú treystir, fara á fund hjá DDV gerðu það þá. Ekki skammast þín, ekki vera hrædd við það heldur trúðu á sjálfa þig og gerðu eitthvað í málunum!

Ég flosna alltaf upp úr prógramminu, hefur þú einhver ráð?

Þú verður eiginlega að gera þér grein fyrir hvað það er sem veldur því að þú flosnir upp úr prógramminu. Á meðan þú veist ekki hvað það er, eða þorir ekki að viðurkenna það getur þú ekki tekið á því.
Annars gerist þetta fyrst og fremst innra með þér, þú verður að ákveða að nú ætlar þér að takast þetta.

Ef það gerast einhver mistök, þá bara standa strax upp aftur og halda áfram og ekki gefast upp.
Þú ert ekkert búin að tapa þó þú fáir þér pönnuköku með rjóma hjá Rósu frænku, þú kannski skoraðir ekki en varst í sókn og næst þegar þú ert hjá Rósu þá tæklaru hana og skorar glæsimark.

En fyrst verður þú að hugsa til baka, finna út hverjir eru veiku punktarnir þínir, hvenær ertu í hættu að "falla" og svo framvegis. Á meðan þú ert að komast inn í rútínuna og láta þetta verða að vana, verður þú einfaldlega að forðast aðstæður sem þú "fellur".

Dr. Phil sagði einu sinni:
Ef þú kaupir þér alltaf pylsu og kók þegar þú keyrir heim úr vinnuni, KEYRÐU AÐRA LEIÐ HEIM, FRAM HJÁ ENGRI SJOPPU.
Ef þú kaupir þér alltaf nammi þegar þú ferð að versla, EKKI VERSLA, biddu einhvern annan um að fara fyrir þig og í leiðinni sýna þér smá stuðning. Ef þú værir fótbrotin myndi Rósa frænka fara fyrir þig út í búð ;).

Ef versti tíminn þinn er á kvöldin, vilt borða non stop (eins og ég), borðaðu þá minna yfir daginn. Það er allt í lagi í DDV að eiga allan mjólkurskammtinn og 3 ávexti eftir + gúffa í sig extra hlutanum.
Ef versti tíminn þinn er á daginn, borðaðu þá meira yfir daginn
Ef þú bara VERÐUR að fá þér nammi og popp í bíó, geymdu bara að fara í bíó í smá stund! Eða þegar þú VEIST að þú ert tilbúin til þess.
Reyndu að umgangast fólk sem styður þig, ekki sækja í fólkið sem setur út á þig. Fólk sem setur út á þig meðan þú ert að gera eitthvað í þínum málum er bara að lýsa sínu óöryggi og minniáttarkennd. Það vill vera eins og þú en getur það ekki einhverra hluta vegna og reynir allt svo þú verðir eins og þau því þá ógnar þú þeim ekki.

ÞÚ VERÐUR AÐ STANDA MEÐ SJÁLFRI ÞÉR. Ef þú gerir það ekki, gerir það ENGINN annar!

Er eðlilegt að vera uppþemdur og saddur þegar maður byrjar á DDV?

Þegar ég byrjaði á DDV þá leið mér eins og þér. Ég var svo söööd, maginn hann stækkaði fyrstu vikuna, ég fann hvernig buxurnar þrengdust að mér í mittinu (og þröngar voru þær fyrir) og ég hafði stórar áhyggjur yfir því að ég myndi nú sennilega ekki léttast neitt (sennilega þyngjast).
Annað kom nú á daginn þegar ég mætti í vigtun og fóru 3,6 kg fyrstu vikuna.
Ég hélt að sjálfsögðu áfram og með smá tíma, hætti ég að vera svona uppþembd og buxnastrengurinn varð lausari og lausari með hverjum deginum.
Núna í dag, verð ég uppþembd á að borða ekki skv. DDV, en maginn hann minnkar fuuuuult eftir þriggja daga DDV fæðu.

HVATNING OG RÁÐ::..:.

Hér eru valdar færslur sem ég hef ritað sem snúast um það að ráðleggja eða hvetja aðra til að taka á sínum málum varðandi heilsuna. Vonandi hjálpar þetta einhverjum :)

Hvatning

Thursdayinn 17. May 2007 kl: 09:54

Ég var að blogga á DDV spjallinu þegar ég áttaði mig á einu.

Í síðustu viku ákvað ég að hefja DDV aftur á laugardaginn og vera 100% í þrjár vikur. Ég get alveg viðurkennt það að ég var ekki með einhvern anda yfir mér eða ákveðni eða kraft til að hjálpa mér að taka ákvörðunina, heldur barðist ég á móti henni og blótaði mér í sand og ösku yfir því að ég nennti nú ekki að fara taka mig á.

Ég reyndi að kasta frá mér öllum svona hugsunum og einbeitti mér að því að stefna að 100% DDV laugardegi. Verslaði á föstudeginum og undirbjó allt þó svo að ég nennti því ekki, hugsaði um að það tæki því nú ekki því það væri bjórkvöld á þessum degi, útskrift KK á hinum deginum, bíóferð, sumarbústaðarferð og fleira og fleira og grey ég myndi missa af þessu öllu matar og drykkjarlega séð... æjæjæj...

En hvað um það.. ég sagði við sjálfa mig *Sigrún, þetta gengur ekki lengur, þú verður bara að taka þig á, það er enginn annar tími betri en hinn, nú bara byrjaru*

Jú jú.. laugardagurinn kom og ég byrjaði... Gekk mjög vel.. Sunnudagurinn kom jú jú .. gekk líka vel.. á þriðja degi kom mánudagur og ég fór að hugsa *ohh nú missi ég af góða góða matnum upp í Glitni* en svo kastaði ég þessari hugsun í burtu og einbeitti mér að því að þetta væru bara þrjár vikur! MATUR ER BARA MATUR!

Á fjórða degi, áttaði ég mig svo á því að ég var bara farin að hlægja miklu meira, ég var hætt að urra á heimilisfólkið og farin að knúsa kallinn minn aftur án þess að hugsa *ég get varla knúsað hann ég er orðin svo feit, ætli hann sé að spá í hvað ég hafi fitnað mikið* og fleira og fleira sem voru niðurrifssetningar og ekkert annað! (og noda bene þá er honum nokk sama hvernig ég lít út, bara að ég sé glöð og hamingjusöm)

Svo í gær, þá fór ég á fimmta degi á bjórkvöld og guð minn góður ég þurfti að finna djamm fötin (fékk mér að sjálfsögðu ekki bjór!) fór að gramsa og tók þau upp og viti menn!!! Á aðeins fjórum dögum var maginn búinn að minnka hrikalega mikið (ekki eins útþanin), búið að renna einhvernvegin af andlitinu á mér bjúgur og ég var bara ágætlega sátt! Fyrir utan það að mér líður bara miklu miklu betur!

Það sem sagt borgar sig að berjast við innri neikvæðar hugsanir og reyna að horfa fram á við, ótrúlegt! Afhverju datt engum þetta í hug fyrr Glottkall

Núna VERÐ ég að passa upp á að vera ekki eins og fólkið sem tekur lyf við allskonar kvillum, fer að líða betur og hættir á lyfjunum og endar svo í sama fari. DDV er lyfið mitt! ég verð að virða það og standast freistingar.

Maður uppsker það sem maður sáir. Ég ÆTLA að vera duglega núna!




Að mistakast

Sundayinn 07. January 2007 kl: 16:50
Ég var að vafra á Netinu á sá á einum erlendum þræði klausu um það að gera mistök eða eins og við köllum það að "falla".´

Mér fannst margt mjög vitrænt á bak við orðin og ákvað að taka smá úrdrátt úr þeim.

Að gera mistök eða falla er ósköp eðlilegur hlutur og er í raun partur af því að ná markmiðum sínum.
Þegar manni mistekst þá er mjög mikilvægt að vera fljót(ur) að koma sér á réttan kjöl og halda áfram á þeirri leið sem maður var á, sem á endanum er uppfylling markmiða sinna.

Það að mistakast er ekki það versta sem getur gerst, það versta er aftur á móti það að láta hræðsluna við að mistakast stoppa þig af við að gera eitthvað í þínum málum, eða bara gera eitthvað yfirhöfuð!

Ef markmiðið þitt er að koma í veg fyrir mistök, þá er öruggt að þér mistakist. Þú verður að viðurkenna það fyrir sjálfri/sjálfum þér að það er mannlegt að gera mistök og með það að leiðarljósi muntu ná árangri á endanum!

Einnig er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að það að mistakast er ekki endalokin, heldur er það ákveðið þrep í því að ná markmiðunum sínum og auka þekkingu sína.

Að sjálfsögðu skipuleggjum við aldrei það að gera mistök eða falla en þegar það gerist er mikilvægt að viðurkenna það og mun viðurkenningin hjálpa þér til að hugsa jákvætt og með jákvæðu hugafari getur þú haldið áfram á næsta þrep og á endanum náð þínum markmiðum



Markmiðssetning

Tuesdayinn 29. August 2006 kl: 11:00
Ég er að lesa bók sem heitir og Burn the fat feed the muscle.

Þar er meðal annars talað um markmiðssetningu og á mjög greinagóðan hátt útskýrt að það sé ekki raunhæft að setja sér það markmið að byggja upp vöðva og létta sig.

Því er líkt saman við það að reyna að ná tveimur kanínum í einu. Held að það sé algjörlega ómögulegt hehehe.. sé það í anda, vitandi ekkert hvert maður eigi að hlaupa því þær skoppa í sitthvora áttina til austurs og vesturs.

En jæja.. þar er einnig verið að kenna manni að setja sér markmið ásamt því að breyta undirmeðvitundinni þannig að maður hættir að brjóta sig niður!

Ætli ég muni ekki koma með punkta úr þessari bók ef ég rekst á eitthvað merkilegt sem ég hef gert á fyrstu 15 blaðsíðunum Broskall


Dr. Phil

Fridayinn 13. October 2006 kl: 10:42
Hann Dr. Phil sagði svolítið sniðugt í gær.

Hann var að ræða við mann sem var 140 kg. og á stórri leið að fá hjartaáföll og fleiri sjúkdóma offitutengda. Í þessu samtali sagði Dr. Phil eitthvað á þessa leið.

*Þér er mjög kært um dóttur þín og værir til í að deyja fyrir hana* (hljómar reyndar betur á ensku en jæja )

Maðurinn játti það

*Þú ert sem sagt tilbúinn til að deyja fyrir dóttur þína og gera allt fyrir hana, en þú ert ekki tilbúinn til að lifa fyrir hana?*

Ohh.. hann hittir svo oft í mark! Elska Dr. Phil Glottkall


Að takast það

Sundayinn 15. October 2006 kl: 21:25
Ég er búin að vera hugsa hvað það er sem ég þarf að gera til að ná af mér aukakílóunum. Veit alveg hvað ég þarf að gera, en hvað er það sem ég verð að gera til að takast það (annað en að segjast ætla að ná þeim af mér)?

Nú .. auðvitað hafa ísskápinn minn hollustu vænan, þannig að þegar ég opna hann þá stara á mig ávextir og grænmeti (sérstaklega grænmeti)

Fara með nesti í vinnuna, þannig að ÉG stjórna því hvað ég borða í hádeginu ekki eldabuskan. Hef nefnilega staðið mig í því að svekkja mig á því hvað er í matinn í hádeginu og endað svo í óhollari fæði en ég ætlaði mér um morguninn

Skipuleggja vikuna, hvað ég ætla að hafa í kvöldmatinn og í nesti og taka einn dag í einu

Já.. Danmerkurferð framundan og ein fatastærð niður Broskall

Það er nefnilega þannig að ef maður stendur sig vel í eina viku, Bara EINA viku þá fer manni að líða svo MIKLU betur og staðfestan svífur yfir mann og mentaðurinn að standa sig vel.


Markmið

Fridayinn 06. January 2006 kl: 23:59
Ég var að rita þessi orð til konu sem skrifaði mér núna í dag og ákvað að taka þau og birta hér. En þau eru um að setja sér markmið og fylgja því eftir.

here it goes (með smá breytingum)

Ef þig (já þú lesandi góður )virkilega langar að léttast, þá er það þitt hlutverk að gera allt í þínu valdi til að ná því markmiði.

Það er ekki nóg að vilja að léttast og það er ekki nóg að setja sér það markmið að léttast, það þarf að vinna að því.

Það væri nú ekki sniðugt að stofna fyrirtæki og segja "Þetta árið á hagnaðurinn að verða 10 milljónir" sitja svo bara í forstjórastólnum og bíða eftir að milljónirnar rúlli inn.

Lífið er vinna og að ná markmiðum sínum er líka vinna.

Þú þarft að setjast niður og ákveða hvað þú ætlar að gera til að ná því takmarki að létta þig, hvað þarf að breytast í kringum þig til þess að þú léttir þig og svo taka á málunum.

Einnig þarftu að gera þér grein fyrir því hvað ÞÚ vilt gera í ÞÍNUM málum, því jú það er ÞÚ sem ræður hvert þú ferð í þessu lífi og hvar ÞÚ endar.

Svo þurfa heldur ekki allir í kringum þig að vera sammála þér svo þú getir fundið hamingju í lífinu og hvað þá fylgt markmiðum þínum eftir.





Að takmarka sjálfan sig

Sundayinn 21. June 2009 kl: 10:42
Ég sat við eldhúsborðið núna í morgun og var að rabba við KK, þegar ég áttaði mig á því hversu oft maður er að takmarka sjálfan sig áður en maður reynir.

Það er ekki langt síðan ég sagði:
"Ég er feit og verð alltaf feit, það er bara ég, ég get ekki grennt mig".. hvað gerðist ? jú ég gat það! og ég get það enn!

"Ég get aldrei hætt að borða nammi,eða takmarkað nammi átið mitt, GLÆTAN!"
ööö jú!

"Ég get ekki lesið, ég sofna allaf, mér finnst ekki gaman að lesa"
hmm... komin með 22 bækur á þessu ári :/ þurfti bara að finna réttu bækurnar Broskall

"Ég get ekki hlaupið, glætan að ég geti hlaupið 5 km eftir fjórar vikur"
hmmm jú víst!, ég átti bara eftir að reyna það og þjálfa mig upp í það!

Nú berst ég við "Glætan að ég geti 10 km eftir 2 mánuði"

Ég er hætt þessu! Ég get allt sem ég ætla mér! og ef ekki, þá á það að koma í ljós eftir að ég hef reynt! Ekki áður!


MENNTUN::..:.

1981-1992::...::Árbæjarskóli::..::high school diploma::
1992-1996::...::Breiðholt College::..::junior collage degree::.department of Art::
1996-1998::..::Iceland University of Education::..::
2001-2004::..::Reykjavik University::..::Computer Science::..:: systems analyst B.c in compter science
2004-2005::..::Reykjavik University::..::Finished first year in MS in Computer Science::..::

Rannsóknarstörf við Háskólann í Reykjavík og önnur.

GETA BLINDIR BLOGGAÐ ? (HR)

Sumarið 2005 gerði ég rannsókn á því hvort blindir geti bloggað og var rannsóknin styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.

SLIDE (HR)

Sumarið 2004 tók ég þátt í Evrópuverkefni sem ber heitið SLIDE eLearning et Développement: Initiatives Locales Solides og er styrkt af Evrópusambandinu, þar sem hlutverk mitt var að afla upplýsinga um fjarnám og upplýsingatæknimennt á Íslandi.

CODEWITZ (HR)

Vorið 2005 tók ég þátt í evrópsku verkefni Codewitz, international project for better programming skills, Minerva verkefni styrkt af Evrópusambandinu.

DÆMATÍMAKENNSLA (HR)

Haustið 2004 og 2005 var ég dæmatímakennari í Hugbúnaðarfræði við tölvunarfræðideildina í HR.

VERKEFNAKENNARI (HR)

Haustið 2004 var ég verkefnakennari yfir tveimur hópum á fyrsta ári í tölvunarfræði sem voru að taka verklegt námskeið þar sem þau forrituðu kerfi í C++ fyrir lággjaldaflugfélag. Vorið 2005 var ég verkefnakennari yfir tveimur hópum á öðru ári í tölvunarfræði sem voru að taka verklegt námskeið þar sem þau forrituðu vefverslun og lagerkerfi í C#

TRÚNAÐARMAÐUR (HR)

Skólaárið 2004-2005 var ég trúnaðarmaður meistaranema við tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík.

TÖLVUNARFRÆÐINGUR/HUGBÚNAÐARÞRÓUN (VKS)

Haustið 2005 hóf ég störf sem forritari hjá VKS.

PRÓFDÓMARI (HR)

Haustið 2005 tók ég að mér að vera prófdómari yfir tveimur hópum sem voru að ljúka 3 vikna verkefni í Verkefnastjórnun upp í Háskólanum í Reykjavík

PRÓFANIR (GLITNIR/ÍSLANDSBANKI)

Hef tekið að mér að kerfisprófa veflausnir hjá Glitni/Íslandsbanka árin 2005 -2009.

RÁÐGJAFADEILD (SKÝRR)

Mánaðarmótin sept - okt 2006 var Kögun og VKS sameinað undir nafni Kögunar og hóf ég þá störf í Ráðgjafadeild Kögunar sem var svo sameinað Skýrr (nóv 2009).

PRÓFANIR (ARION BANKI)

Ég hóf störf hjá Arion banka 10. sept 2010 en þar sé ég um prófanir á veflausnum eins og Netbankanum og fl. kerfum.

STJÓRN FÉLAGS KVENNA Í UPPLÝSINGATÆKNI

Árið 2006-2007 sat ég í stjórn félags kvenna í upplýsingatækni og var endurkjörin fyrir árið 2007-2008.

Annað

Um mig

Mínir aðalkostir eru þeir að ég á gott með að vinna ein og með öðrum í hóp, er skipulögð og sjálfstæð. Ég hef frumkvæði, er stundvís og vinnusöm. Er með forystuhæfileika og á gott með að setja mig í spor annarra sem og að bera virðingu fyrir skoðunum fólks. Ég sé hlutina oft í víðu samhengi og lít á gagnrýni sem jákvæða uppbyggingu sem hleypir mér áfram í lífinu. Ég er jákvæð, glaðlynd og metnaðargjörn. Ég hef aldrei reykt og er mjög reglusöm.

Áhugamál

Áhugamál mín snúast að mestu um tölvur og myndlist og tók ég þátt í samsýningu ungs fólks árið 1992. Einnig stundaði ég píanónám í sjö ár. Ég hef tekið að mér að hanna logo fyrir fyrirtæki og einstaklinga og er ég að vinna að myndskreytingu ljóðarbókar sem stendur.

Áfangar sem ég hef lokið í Háskólanum í Reykjavík

BSc. námið

  • Systems Analysis -- ( isl. Kerfisgreining )
  • Computer Architecture -- (isl. Almenn Tölvufræði)
  • Programming C++ -- (isl. Forritun )
  • Computer Science Overview
  • Discrete Mathematics -- (isl. Strjál stærðfræði)
  • First semester project course - Object-oriented programming
  • Data Structures -- (isl. Gagnaskipan)
  • Databases (isl. Gagnasafnsfræði)
  • Windows programming -- (isl. Gluggakerfi)
  • Interface design -- (isl. Viðmótshönnun)
  • Second semester project course - Windows programming and Databases
  • Operating Systems -- (isl. stýrikerfi)
  • Third semester project - Web programming and project
  • Computer Networks --(isl. Tölvusamskipti)
  • Software Design and implementation -- (isl. Hönnun og smíði hugbúnaðar)
  • Software Engineering -- (isl. Hugbúnaðarfræði)
  • Computer Architecture -- (isl. Vélbúnaður)
  • Information Systems Management -- (isl. Rekstur upplýsingakerfa)
  • Algorithmic --(isl. Reiknirit)
  • Microeconomics--(isl. Rekstrarhagfræði)
  • Performance of Database systems (isl. Sérhæfð gagns.kerfi)
  • User Centered Software Development--(isl. Notendamiðuð hugbúnaðargerð)
  • Functional programming--(isl. Forritunarmál)
  • Mathematical Algoritms--(isl. Stærðfræðileg greining)
  • Management II--(isl. Stjórnun II)
  • New Technology--(isl. Ný tækni)
  • Upplýsingatækni í skólum--
  • BS-lokaverkefni VASKI--

Meistaranámið

  • Stöðuvélar og Reiknanleiki--
  • Aðferðarfræði--
  • Sjálfstæð verkefni--
  • Bayesian net--
  • Megindlegar rannsóknaraðferðir--

Endurmenntun

  • 2006 - Endurmenntun Háskóla Íslands - Managing and optimizing your Test methods
  • 2006 - Endurmenntun Háskóla Íslands - Certified International Tester
  • 2006 - Samsýn - Grunnnámskeið í ArcGis - landupplýsingakerfum
  • 2006 - Verkstjórnarnámskeið - Kögun hf.
  • 2006 - Námskeið í Umsjónarhluta Starfanda
  • 2007 - Microsoft CRM 3.0 Customization

HUGBÚNAÐAR OG FORRITUNARKUNNÁTTA::..::

Góð kunnátta

  • .NET 2.0::..::
  • C#::..::
  • PHP::..::
  • HTML/XHTML::..::
  • XML::..::
  • Windows95/98/Millenium/2000/XP::..::
  • Microsoft word/excel
  • /powerpoint/access/outlook::..::
  • /Visio/Project::..::
  • MySQL::..::
  • Oracle::...::
  • Linux::..::
  • Macromedia Director MX::..::
  • Lingo::..::
  • Dreamweaver::..::
  • Photoshop::..::

Kannast við

  • C++::..::
  • Borland Builder::..::
  • JBuilder::..::
  • Machintosh::..::
  • JAVA::..::
  • TomCat::..::
  • JBoss::..::
  • Ant::..::
  • Visual Basic::..::
  • Java::..::
  • MFC::..::
  • SML::..::
  • Prolog::..::
  • Scheme::..::
  • Smalltalk::..::
  • Mandrake::..::
  • KDE (Linux)::..::
  • GNOME (Linux)::..::
  • and much much more :)