Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Ketones

Monday 06. September 2010 kl: 18:45

Í færslunni um Að fasta tala ég um niðurbrot af Ketones en ég var ekki alveg með á hreinu hvað það væri.

Nú er ég ekki með neina menntun í þessum fræðum, og í raun þyrfti ég bara að fá að tala við einhvern til að fá svör við spurningunum sem komu upp þegar ég var að lesa um Ketóna því ég hugsaði alltaf "bíddu er ekki bara gott mál að líkaminn fari í þetta Ketóníska ástand, ég hlýt að vera grennast svakalega þannig!"...

Afhverju ?

Jú af því að þegar líkaminn er uppurin af glúgósa (sem við fáum með því að borða kolvetni), þá fer líkaminn að mynda þessa blessuðu Ketóna og það sem þeir gera er að ráðast á fituna til að fá orku. VEII! ég sá bara mig mjókka um 100 kíló þarna!.. Reyndar er þetta það sem gerist í Atkins kúrnum og eru aukaverkanirnar vond lykt af manni og þvaginu hehehe.. En eins og við vitum flest öll þá er Atkins kúrinn kolvetnasnauður.

En skynsemin mín bankaði í kollinn á mér eftir að hafa í augnablik dagdreymt um kolvetnislausa fæðu sem myndi ráðast á fituna mína þegar ég fór að lesa meira, en *dæs* með hreyfingu sem krefst auka orku þá getur líkaminn farið í þetta ástand.... Kannski er það hollari leið (ef það er OK að fara í Ketónískt ástand (gef mér bessaleyfi að kalla þetta það Broskall))

En samt.. allar þær stöður sem mynda þetta ástand er líkaminn í annarlegu ástandi, þ.e.a.s hann er aldrei í 100% topp formi, en þar deilir víst vísindamönnum á, en það eru skiptar skoðanir hvort þetta sé hollt ástand eða óhollt...

Ef við sveltum okkur eða föstum, þá fer líkaminn að brenna fitu til að fá orku en síðast þegar ég vissi var ekki hollt að svelta sig.

Þegar við erum ólétt þá þurfum við orku fyrir tvo og líkaminn nær í hana í fituna ef upp á vantar. Ég veit að ólétta er kannski ekki annarlegt ástand hehehe en hmm..já...

Ef þú ert sykursjúkur þá kemur þessi aðstaða oft upp. En væntanlega erum við öll sammála um að það er ekki kjörástand fyrir líkamann.

Ef líkamanum vantar insúlín til að troða glúkósanum inn í frumurnar.

Ef þú ert veik eða undir miklu álagi nær líkaminn í orku frá fitunni ef hann finnur ekki neina orku.

og svo var þetta með hreyfinguna.. ef þú ert að æfa og hefur ekki fyllt þig af orku fyrir æfingu, þá ræðst líkaminn á fituna.


Þetta svaraði reyndar tveimur hugleiðingum mínum. Afhverju grennist fólk sem er sykursjúkt skyndilega og afhverju missa sumir kg þegar þeir eru undir álagi.

Jú sennilega af því að líkaminn fer að ráðast á fituna til að fá orku.

Já.. sem sagt ég er ekki með neina niðurstöðu hvort þetta sé gott eða slæmt :/ en klárlega dýpkaði þetta þekkingu mína á hvernig líkaminn fúnkerar Broskall

Ekki það að ég óski sérstaklega eftir því að fara í Ketónískt ástand þar sem þetta eru einkennin:

Aukin þorsti.
Pissar meira.
Þurrkur í munni.
Súr andardráttur.
Flökurleiki/uppköst.
Erfið öndun.
Magaverkir.
Minni matarlyst.
Þreyta.
Þurrkur á líkamanum.


ööööö jú kannski er þetta ekkert sniðugt.. svona til lengri tíma a.m.k Broskall

Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð) Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluBlogg um fjölskyldu

Starfslok og ný vinna

Monday 06. September 2010 kl: 16:59

Logo

Logo

Logo
Í dag lauk ég störfum hjá Skýrr eftir 5 ára samband (VKS,KÖGUN,SKÝRR), fór svo að hvaddi ISB með stæl. Á eftir að sakna margra á báðum stöðum *snökt*.. en nú eru nýjir tímar og Arion banki bíður eftir mér með nýjum tækifærum og nýjum vinum og nýjum markmiðum... Framtíðin er björt Broskall



Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð) Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Járnkallinn í Sept - Niðurstaða vika 1

Monday 06. September 2010 kl: 07:32

Niðurstaða Járnkall

Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Sigga Júlla,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluHlaup, Sund, Hjól

Járnkall í sept - Vika 1

Sunday 05. September 2010 kl: 20:40

Run Swim Cycle
Hlaup: 10.5km
Hjól: 0km
Sund: 1 km

Samtals mín: 1 klt og 52 mín



Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð) Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Að fasta

Sunday 05. September 2010 kl: 09:13

Fasta Ég hef oft verið að pæla í því hvort það að fasta sé eins hollt og aðal heilsugúrúar Íslands tala um. En í morgun fékk ég tölvupóst akkúrat um það málefni.

Hér er í stuttu máli hvað var sagt, en að mínu mati er of mikið talað um þetta frá annarri hliðinni, þ.e.a.s frá þeim sem mæla með þessu og finnst mér nauðsynlegt að ræða hina hliðina líka.

Þegar maður fastar, er maður þá að "jumpstarta" þyngdartapi og bæta heilsuna ?
Margir halda því fram að þegar maður fastar þá er maður að hreinsa líkamann af óæskilegum efnum (afeitra líkamann), gefa brennslunni sjokk og þar af leiðandi koma þyngdarlosun af stað. Þrátt fyrir þessar alhæfingar hefur heilbrigðisgeirinn ekki tekið í sama streng eða fundið vísindlega leið til að styðja þessar kenningar skv. greininni sem ég var að lesa.

Þegar við erum í eðlilegri brennslu (ekki að fasta), fær líkaminn aðallega orku frá glúkósa og fitu sem við fáum úr kolvetnum og fitu sem við borðum. Bæði heilinn og taugakerfið þarf á þessum orkugjafa að halda til að starfa, en líkaminn geymir einnig orku í vöðvunum og lifrinni í formi glycogen.

Þegar við föstum og glúkósinn sem við eigum er búinn fer líkaminn að ganga á glycogen byrgðirnar en sú orka er fljót að eyðast og fer þá líkaminn að ráðast á eigin próteinbyrgðar til að búa til meiri glúkósa (orku) fyrir heilann og taugakerfið. Það er þá sem við missum vöðvamassa og niðurbrot af ketones verður (ég ætla að kynna mér nánar hvað þar er og blogga um hvað það gerir fyrir okkur á morgun) og er þetta ástand EKKI heilsusamlegt!

Þegar við föstum þá er yfirleitt niðurstaðan sú að þú léttit, en sannleikurinn er sá að léttingurinn er vatnslosun, uppþornun, tap á vöðvamassa. Margir finna fyrir þessum einkennum sem ofþreytu og svima ef þið eruð að pæla í hvernig einkennin eru.

Maður spyr sig hvernig það getur verið hollt, eftir að hafa eytt mörgum árum í að borða óhollan mat, vera í yfirþyngd og stunda lélegt matarræði yfir höfuð, að koma líkamanum í þetta ástand ? Maður spyr sig líka hvernig það getur verið eðlilegt að ráðleggja fólki sem er að byrja í að taka heilsu sína í gegn að byrja á á þessum enda og því miður er það oft fólk sem gefur sig út fyrir að vera sérfræðingar í heilsu fólks sem ráðleggur þetta.

Það sem líkaminn þarf er almennileg næring (ekki engin næring) sem inniheldur holl kolvetni, ávexti, grænmeti, léttar mjólkurvörur, holla fitu, fisk, baunir og fleira. Það er þá sem þú færð líkamann til að vinna með þér!

Notum skynsemina þegar það kemur að því að velja leiðir til að létta okkur, við þurfum ekki þessar öfgar.

Hefur þú eitthvað að segja?  (11 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: barbietec,  besta mamma,  Elinth (12x12),  Erna Magnúsdóttir,  Linda,  Steina,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluBlogg um fjölskyldu

Bumbuboð Dagrúnar

Saturday 04. September 2010 kl: 23:46

Ég fór í Bumbuboð til Dagrúnar í dag, en við systurnar erum að koma upp þeirri hefð á Íslandi að halda svokallað BABY SHOWER handa verðandi mæðrum. Við fundum orðið Bumbuboð upp til að íslenska hefðina og í dag var sem sagt Bumbuboð haldið út af væntanlegri komu litla frænda Broskall

Hér eru nokkrar myndir frá boðinu, en það heppnaðist einstaklega vel Broskall

Bumbuboð
Hér er aðalkakan sem ég gerði úr Fondant, rosa gaman að bralla í fondantinu Broskall

Bumbuboð
Litla systir að skera kökuna

Bumbuboð
Dagrún í Pin the Baby!

Bumbuboð
Ég!

Bumbuboð
Og Erla

Bumbuboð
... og þetta var niðurstaðan eftir að allir höfðu prófað hehehe Broskall

Bumbuboð
ÚÚÚÚ.. Pakkinn minn! En ég gaf henni aaaaaaaallskonar dót (stíla, krem, hitamæli, tannbursta, föt, svæfil, eyrnapinna og fl.).

Bumbuboð

Mæli klárlega með Bumbuboði, skemmtilegt að hittast og spjalla um daginn og veginn, fara í nokkra leiki og fagna væntanlegri komu litla bumbubúans Broskall

Hefur þú eitthvað að segja?  (3 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Angua,  Trítla,  Ylfa,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluHlaup, Sund, Hjól

1000m sund

Saturday 04. September 2010 kl: 19:09

adomdoran.com
Ég fór áðan í sund og tók 1000m. Nú á ég bara 2800m eftir í IronMan áskoruninni WHOWHO!
Komst að því að 1k í sundi fyrir mig er eins og að fara út að hlaupa 5k, það er að segja hitaeiningalega séð. Ágætis viðmiðun það Broskall

Ég slasaði mig þegar ég var 13 ára á fæti, auðvitað fékk ég verk í fótinn, en ég sagði honum bara að halda kjafti, hann myndi sko ekki eyðileggja fyrir mér þessa sundferð. Verkurinn reif kjaft allan tímann en ég þrjóskaðist áfram. Skrítið hvað lítið rof í vaxtabeini getur haft afleiðingar til lengri tíma *hrmp*....

En ég er sátt með sundið og hlakka til að fara næst Broskall



Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð) Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærslu12 kg á 12 mánuðum

Kolvetni

Thursday 02. September 2010 kl: 09:49

Flókin kolvetni Kolvetni, Kolvetni, Kolvetni, Kolvetni...


  • Við þurfum á þeim að halda af því að þau eru góður orkugjafi fyrir líkamsstarfssemina.

  • Heilinn okkar þarf meira segja á þeim að halda þar sem þau eru mjög mikilvægur orkugjafi fyrir hann.

  • Við finnum Kolvetni í ávöxtum, grænmeti, baunum, mjólkurvörum, sykri, hunangi og fl.

  • Líkaminn breytir kolvetnunum í glúkósa sem hann notar svo sem orkugjafa, en ef við borðum of mikið af þeim þá breytist glúkósinn í fitu *hrmp*...



Einföld kolvetni - Flókin Kolvetni - Tormelt kolvetni

Einföld kolvetni eru auðmeltanleg, breytast þar af leiðandi fyrr í orku og rannsóknir sýna að þau hækka blóðsykurinn hratt og auka matarlyst.

Flókin kolvetni meltast hægar og hækka blóðsykurinn þar af leiðandi hægar. Í flóknum kolvetnum eru vítamín, steinefni og trefjar sem stuðla að bættri heilsu. Þau hjálpa okkur að halda matarlystinni í skefjum og við nýtum orkuna betur og þar af leiðandi breytum við ekki orkunni í fitu (a.m.k ekki jafn hratt).

Tormelt kolvetni eru einnig kölluð trefjar og er ekki orkugjafi en skipta miklu máli fyrir heilsuna okkar.

Sykur síróp, hunang, nammi, sulta, hlaup, sætir gosdrykkir innihalda einföld kolvetni og nánast enga næringu og ættum við þar af leiðandi að forðast þessar vörur.

Ávextir innihalda flest öll einföld kolvetni en á móti mikið af vítamínum, steinefnum, trefjum og vatni sem gera ávextina góða fyrir okkur.

Grænmeti innihalda bæði flókin og einföld kolvetni með vítamínum, steinefnum og vatni og þess vegna er grænmeti svona súper dúper holt.

Baunir innihalda flókin kolvetni með vítamínum, steinefnum og öðrum næringarefnum

Mjólkurvörur innihalda einföld kolvetni með próteini, kalki og öðrum næringarefnum og er mikilvægt fyrir heilsuna okkar. Við þurfum bara að velja fituminni mjólkurvörur.

Kornvörur innihalda flókin kolvetni með vítamínum, trefjum, steinefnum og próteini og eru góð fyrir meltinguna okkar.

Eins og þið sjáið þá eru öll einföld kolvetni ekki óholl og eru hreinlega nauðsynleg fyrir heilsuna okkar, þannig að þegar því er slengt fram að við eigum að borða flókin kolvetni ekki einföld, þá er það ekki eins einfalt og það hljómar og getur verið villandi.

Leið og einföld kolvetni eru komin með næringarefni og tefjar, þá breytast lögmálin!

Kolvetni er ekki óvinur okkar við þurfum bara að velja að borða rétt kolvetni það gerum við með einföldum reglum.

1. Borða grænmeti og ávexti á hverjum degi
2. Borða gróft brauð, gróft pasta, brún hrísgrjón
3. Borða fituminni mjólkurvörur
4. Forðast hvítt hveiti, hvít hrísgrjón, djúpsteiktan mat
5. Borða kökur og bakkelsi algjörlega spari ásamt sykur, hunang, síróp, sultu og sykurdrykki. (Það er óraunhæft að segja EKKI borða kökur....)


Ef ég fer með rangt mál endilega leiðréttið mig eða komið með fróðleg innlegg Broskall

Hefur þú eitthvað að segja?  (3 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: besta mamma,  Eva,  Haukur Kristinsson,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluHlaup, Sund, Hjól

Fyrsti í Ironman

Wednesday 01. September 2010 kl: 22:12

Eitthvað varð lítið úr Ironman í dag! Þegar ég kom heim var búið að SKERA á dekkið á hjólinu, þegar ég var á leiðinni í sund hringdi systir mín í mig og dobblaði mig út... svo var saumó og nú er klukkan rúmlega 10!

En! Fall er fararheill!! Á morgun verður hlaupið!



Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Margrét Th.,   Bookmark and Share


Icon fyrir framan bloggfærsluHlaup, Sund, Hjól

Á leið yfir marklínuna

Wednesday 01. September 2010 kl: 13:36

Ég fann þessa mynd á Netinu áðan og gat ekki annað en keypt hana um hæl! Er meira segja að pæla í að prenta hana bara út Broskall

Reykjavíkurmaraþon



Hefur þú eitthvað að segja?  (8 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: barbietec,  besta mamma,  Bogga,  Fresinius,  Linda,  Rakel,   Bookmark and Share


Viltu lesa meira blogg?