Barbietec
Nennan
Hreyfing gærdagsins: 1.5 klt dans
Hvað er ég ánægð með í dag: Geggjað dugleg að hreyfa mig.
Vikt: -400 g
Ég er stundum dugleg og stundum ekki, stundum nenni ég að hreyfa mig og stundum ekki, stundum er ég dugleg í matarræðinu og stundum ekki, stundum er ég með nennuna og stundum ekki...
Ég er stuðningsmaður þess að þegar maður er með nennua að gera aðeins meira, þá ég maður að grípa tækifærið og gera aðeins meira, í stað þess að gera ekki neitt af því að maður veit að það er fyrirfram dæmt að maður verði ekki með nennuna lengi (eða þannig hugsa ég stundum a.m.k)
Ég er með nennuna núna og ég er að njóta hennar...
Nennan mín kom mér út að hlaupa í dag í 1 klt alls  7 km á sprettæfingu...
Nennan kom mér líka í sund og synti ég 400 m eða í 15 mín...
Eftir sundið fór ég svo á kaffihús í 2 tíma og prjónaði með vinkonu minni...
Dans
Þetta er bara snilld. Maður hlær, brosir, fíflast og skemmtir sér konunglega allan tímann og svo er þetta massa erfitt líka!
Ég kem alltaf kósveitt heim úr dansi og uppveðruð yfir hvað var gaman.
Við erum farin að dansa cha cha cha með snúning og new yorker og læti, mambó er farið að rokka, jive er farið að verða liprara (staurfæturnir s.s farnir að lyftast frá jörðu) og tjúttið sem er skemmtilegast tökum við með svo kröfulegum snúningum að ég er eins og þeytispjald um gólfið..
Tja við a.m.k upplifum okkur svona á gólfinu heheheh... Veit ekki alveg hvort danskennarinn sér okkur svona.. En það er allt í lagi.. Við skemmtum okkur :)
Greip
Hreyfing gærdagsins: Engin
Hvað er ég ánægð með í dag: Stóð mig vel í matarmálum
Vikt: -600
Kallinn kom heim með greip í dag. Hann ætlaði að kaupa sér appelsínur en ruglaðist eitthvað. Ég fékk mér eitt áðan og fór svo eitthvað að pæla í hvort greip væri holt eða ekki.
Greip getur verið rautt, hvítt og bleikt og inniheldur mikið af C vítamíni og eins og svo margir aðrir C vítamínríkir ávextir þá getur það minnkað asthma einkenni, lækkað kólesteról, minnkað líkurnar á hjartasjúkdómum og krabbamein.
Greip safi minnkar líka líkurnar á því að maður fái nýrnarsteina en það á reyndar líka við um appelsínusafa eða eplasafa þannig að nú getur maður verið óhræddur að drekka þannig :)
Það er líka talað um að greip er gott sem hjálp við þyngdarlosun þar sem það hraðar á efnaskiptunum.
How I found the perfect dress (5)
Þessi bók er nr.2 í The Morgan seríunni. Hún byrjaði nú ósköp gelgjulega. En mér líkar hvernig \"álfa\" heiminum er lýst og pælingarnar þar, þannig að leið og kemur að þeim hluta þá dett ég inn í bókina og get ekki slitið mig frá henni.
Lærðu af fortíðinni
Hreyfing gærdagsins: Engin
Hvað gerði ég vel í dag: Passaðu upp á matarræðið.
Ég rakst á góða tilvitnun í dag.
\\\"Gleymdu fortíðinni. Enginn getur náð árangri í fortíðinni\\\" - Josh Billings.
Sama hversu mikinn tíma við eyðum í að hugsa um fortíðina, veltum fyrir okkur hvað gæti hafa gerst ef við gerðum hitt og þetta öðruvísi, ef við hefðum tekið aðrar ákvarðanir eða sagt nei í stað já þá skilar það engum árangri.
Við getum aftur á móti notað reynslu fortíðarinnar og lært af henni.
Hlakka til
Hreyfing gærdagsins: rúmlega 4 km rösk ganga.
Hvað gerði ég vel í dag: Var þakklát fyrir að hafa átt góða helgi.
Ég fór í bústað með vinkonum mínum um helgina og skemmti mér ótrúlega vel!
Ég leyfði mér nú ýmislegt sem er ekki megrunarvænt, en þar sem þessi ferð var löngu ákveðin, þá gat ég notið hennar andlega og matarlega til hins ítarsta.
Ég fann samt alveg hvað veggurinn minn hjálpaði mér og ég hlakkaði til að geta komið heim og fært miðana mína í LOKIÐ! þar sem við fórum í góðan göngutúr, ég brosti, hló, var jákvæð og leði vel  :)
Nú taka við þrjú markmið fyrir næstu viku og ætla ég að standast þau öll!
Það er margt framundan í formi freystinga, en ég finn einhvernvegin hvað ég er tilbúin núna :)
Njóta lífsins
Hreyfing gærdagsins: Engin
Hvað gerði ég vel í dag: Fór út að ganga í 53 mínútur :)
Við verðum að muna að njóta lífsins.
Laugavegurinn
Ég er að fara ganga Laugaveginn í sumar með vinahóp og förum við með ferðafélaginu Útivist :)
Fyrir ári síðan hefði mér ekki einu sinni dottið það í hug að ganga Laugarveginn, hvað þá fara í göngutúr upp í Heiðmörk!
Borðaðu allt en bara nógu lítið
Hreyfing gærdagsins: Engin
Hvað gerði ég vel í dag: Jákvæð og í góðu skapi.. já og ég fór að kjósa :)
\"Borðaðu allt en bara nógu lítið\" var ráðleggingin sem ein 12x12 kvinna fékk þegar hún var unglingur og átti það að hjálpa henni í baráttunni við auka kílóin.
Hver kannast ekki við svona innan tóm ráð... Þar sem hugtakið lítið er mjög teygjanlegt og í raun MJÖG stórt! og segir manni ekki (sorry orðbragðið) RASSGAT hvað er verið að meina.
\"Hreyfðu þig reglulega\"... hvað er reglulega ? Ef ég hreyfi mig einu sinni á ári á hverju ári, er það ekki reglulega ?
\"Hugsaðu um matarræðið\"... ok ég skal hugsa um matarræðið...*hux*... mjókka ég við það eina að hugsa um það ?
\"Hafðu einn nammidag í viku\" ok! ég skal hafa einn nammidag í viku... (sem þýðir í raun að ég borða nammi frá morgni til kvölds, því ég er hömlulaus nammiæta, og á einum degi tekst mér að eyðileggja alla vikuna!\"
Að vera með óskýr markmið gefur okkur svigrúm að skoppa í kringum þau og bjaga þau þannig að markmiðin verða innan tóm.
Setjum okkur skýr markmið!
Til dæmis segja
Ég ætla að hreyfa mig reglulega með því að fara í ræktina þrisvar í viku.
Ég ætla að borða nammi einu sinn í viku og leyfa mér 500 hitaeiningar af nammi í hvert skipti
Ég ætla að hugsa um matarræðið og borða 4 ávexti á dag, 300-500g af grænmeti, hnefafylli af próteini... (you get the point)
Ég ætla að borða allan mat, en borða lítið af hverju og fylgjast með hitaeiningainntöku minni í samanburði við hreyfingu og ef ég vil léttast verð ég að brenna 1000 hitaeiningum meira en ég borða.
Ég held maður nái miklu betri árangri á því að hafa skýr markmið! Ekki setja sér mörg, það er hægt að setja sér t.d 3 markmið á viku
Eitt sem tengist hreyfingu
Eitt sem tengist matarræði og
Eitt sem tengist andlegri heilsu
Möbíus
hér er svo formúlan